sunnudagur, maí 14, 2006

Evróvisjónkenningar

Húsmóðirin hefur kenningu. Kenningin viðkemur Silvíu Night og víðfrægu blótsyrði sem hún notar óspart og kemur fyrir í texta framlags Íslendinga til Evróvisjónkeppninnar í ár. Þar sem að útlit er fyrir (samkvæmt veðbönkum og Evróvisjón spekingum) að Silvía sigri EKKI keppninna er húsmóðirin þess fullviss að hún á eftir að blóta eins og togarasjómaður á sviðinu í Aþenu, láta henda sér út úr keppninni og kenna svo samsæri og skemmdaverkum um. Eru ekki alltaf allir að reyna að koma í veg fyrir að hún sigri - þetta vesen með blótsyrðið er bara enn ein leið ráðamanna til að berja alþjóðlegu stórstjörnuna niður. Þeir eru bara hræddir. Í það minnst er líklegt að viðbrögð Silvíu við brottkasti úr keppni verði eitthvað á þessa leið. En í það minnst verður það að segjast að fyrir alþjóðlega stórstjörnu er skárra að láta dæma sig úr keppni en að lenda í 16. sæti. Það er þá allavega hægt að kenna öðru um en slöku gengi í keppninni.

1 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Brilljant plan, eina leiðin til að komast "vel" frá keppninni. Held að dívan sé búin að fatta þetta!
En það er spennandi að búa til scenario plan um hvað gerist ef hún yrði ekki dæmd úr keppni...
kv. Lorilei

15/5/06 09:23  

Skrifa ummæli

<< Home