miðvikudagur, september 28, 2005

Svo bregðast krosstré sem önnur tré

Húsmóðirin á vinkonu sem í eina tíða var gallharður Framsóknamaður og má rekja Framsóknarblóð langt aftur í ættir hennar. Á Verzlunarskólaárunum vitnaði hún oft í kallinn afa sinn með frösum eins og "allt er betra en íhaldið" og "allt er vænt sem vel er grænt" en afinn sá hafði setið á hinu háa Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn. Afinn hefur hvílt undir grænni torfu í allmörg ár en veltir sér eflaust marga hringi í gröfinni yfir framgangi mála á yfirborðinu. Jörðin sem afi kallinn átti fyrir vestan er núna í eigu framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins (og reyndar aðliggjandi jarðir og nánast sveitin öll einnig) og dótturdóttirin sem vitnaði í afa sinn með lotningu er nú orðinn flokksbundinn Sjálfstæðismaður og vinnur nú að því hörðum höndum að fá móður sína til að bindast Flokkinum blóðböndum. Það verður sennilega aldrei of oft sagt að enginn veit ævi sína fyrr en öll er!
Húsmóðirin býður vinkonuna velkomna í flokkinn.

3 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Þar sem vinkonan er nú ljóska (með rauðu afbrigði eins og Inga Sif) þarf hún nokkrar tilraunir til að sannfærast. Mætti halda að sambýlismaðurinn hefði mikinn sannfæringarkraft hmmmmm. Hins vegar finnst vinkonunni að húsmóðirin ætti nú ekki að vera eins lengi að ákveða sig og styðja Vilhjálmsson fjölskylduna heilshugar í komandi kosningum. Kannski lifir enn í gömlum glæðum síðan á menntaskólaárunum!!!! Eins og hrísla.......

1/10/05 20:16  
Blogger hdb sagði...

Já, það er spurning hvort það borgi sig að blása í glæður síðan á menntaskólaárunum. Húsmóðirin man ekki betur en að hún sjálf og ljóskuvinkonan hafi varla séð sólina fyrir mótframbjóðanda Vilhjálms. Hins vegar hafa stjórnmálaskoðanir húsmóðurinnar lítið breyst í gegnum árin - hún hefur alltaf sett x við sinn staf og stefnir ekki í breytingu á því á næstunni;)

2/10/05 21:12  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Enda engin þörf á að breyta því. x-H fyrir Húsmóðurina!!! :-))

3/10/05 18:16  

Skrifa ummæli

<< Home