þriðjudagur, september 27, 2005

leti

Húsmóðirin hefur verið afskaplega löt að skrifa eitthvað misgáfulegt hér á þessum vettvangi. Helgast það af tvennu; annars vegar hefur lítið markvert gerst og ekki margt legið á húsmóðurhjarta; hins vegar dregur það alltaf úr húsmóðurinni að skrifa þegar fáir (eða jafnvel enginn) sjá sér fært að tjá sig um það sem skrifað er. Húsmóðirin er nefnilega athyglissjúk í eðli sínu og vill endilega fá viðbrögð við því sem varpað er fram. Til að bæta úr þessu þarf tvennt til; húsmóðirin þarf að vera duglegri að skrifa og vera sniðug í skrifum sínum. Lesendur þurfa að vera duglegri að tjá sig um skrifin. Samhent átak takk!

5 sagt:

Blogger hdb sagði...

Gat nú skeð að eina kommentið væri bara spam! Nú er ég í alvörunni fúl :(

27/9/05 13:59  
Blogger Ragnheidur sagði...

Svona, svona. Ekki vera fúl! Það er ekki kúl.

27/9/05 16:52  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Heyrðu ég les nú bloggið þitt og hef mjög gaman af. Mér finnst það svo heimilislegt.
Anna Ragnheiðarvinkona

27/9/05 20:35  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Keep up the good work!

27/9/05 21:28  
Blogger inga hanna sagði...

ég deili bloggleti með þér..

28/9/05 22:39  

Skrifa ummæli

<< Home