Af Pólverjum og minnisleysi
Það rifjaðist upp fyrir húsmóðurinn af hverju hún gerði blogghlé all langt. Þannig er nefnilega í pottinn búið að þegar kemur að því að skrifa niður þær hugrenningar sem mótast hafa í húsmóðurhöfði er eins og þær hverfi fyrir galdur í hvert sinn sem blogger er opnaður. Það gerðist einmitt rétt í þessu. En húsmóðirin á ráð undir rifi hverju og ákvað að stara bara á skjáinn þar til hugarþokunni létti. Og viti menn - það virkaði.
Umhugsunarefnið að þessu sinni var tengt leiguíbúðum og Pólverjum. Það virðist nefnilega vera endalaust framboð af Pólverjum sem vilja leigja íbúð og hafa þeir sem eftir einhverjum leiðum vita af mögulegri leiguíbúð í ranni húsmóðurinnar og stjörnulögfræðingsins farið þess á leit í fleiri en eitt skipti að við opnum dyr okkar fyrir Pólverjum. Hafa fyrirspurnirnar jafnvel farið í það að allt að sjö Pólverjar úr verkamannastétt gætu vel komist fyrir í þessari þriggja herbergja íbúð.
Húsmóðirin og stjörnulögfræðingurinn standa þó föst á því að leigja helst aðeins fjölskyldufóki og þá skiptir þjóðernið ekki öllu máli. Tveir eða fleiri fullvaxnir karlmenn rúmast ekki á neðri hæðinni.

3 sagt:
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
hvaða hvaða, eru þetta fordómar að vilja ekki tvo fullvaxna karlmenn?
(og afsakið að þetta sé á íslensku, vissi ekki að komment ættu að vera á spænsku eða hvað þetta er frá vini þínum að ofan)
Velkomin aftur ;)
Skrifa ummæli
<< Home