sunnudagur, september 20, 2009

Haust

Rok, rigning, suddi, kuldi, bókhald, sunnudagur, syfja.

föstudagur, maí 29, 2009

Spiderman aðdáun prinsessunnar

Prinsessan hefur nýverið fengið mikinn áhuga á Spiderman og biður um að fá að horfa á teiknimyndaseríuna um kappann. Þegar leitað var eftir útskýringum á þessum nýfengna áhuga kom skýringin umbúðalaust. Það eru nefnilega strákur og stelpa í þáttunum sem eru skotin hvert í öðru og þau eru stundum að kyssast!

þriðjudagur, maí 19, 2009

Konan í glugganum

Það situr kona í glugga við Barónsstíg. Að sögn skáldkonunnar í Skerjafirði er henni ekki óhætt að vera í stuttu pilsi. Konan situr við hvítt borð og hamrar á tölvu eða talar í síma. Og gangandi vegfarendur um Barónsstíg virða hana fyrir sér þegar þeir ganga framhjá.

fimmtudagur, apríl 23, 2009

Sumardrengur á hjólaskautum

Varnarjaxlinn var mjög spenntur yfir sumarkomunni í morgun. Hann skreið upp í rúm til mömmu sinnar klukkan hálf sjö, að farast úr spenningi yfir því hvað hann fengi í sumargjöf. Húsmóðirin frestaða sumargjöfum til klukkan níu og vísaði drengnum úr rúmi. Hálftíma síðar var hann búinn að reima á sig forláta hjólaskauta með tilheyrandi hávaða. Svefndrukkin húsmóðirin með fulltingi stjörnulögfræðingsins þaggaði niður í drengnum sem lét sér segjast og fór að horfa á barnatímann.
Þegar hjálmurinn var kominn upp úr sumargjafapokanum og kominn á höfuð varnarjaxlsins voru skautarnir reimaðir aftur á fæturna og varnarjaxlinn skautaði inn í sumarið. Húsmóðirin situr heima með krosslagða fingur og vonar að beinin beri ekki skaða af þegar drengurinn dettur. Hann er þó með nýjan hjálm!

miðvikudagur, apríl 22, 2009

Af slagsmálum

Húsmóðirin er afskaplega þreytt á slagsmálum sem hún lendir í við prinsessuna á hverjum morgni þessa dagana. Hvert einasta atriði í aðdraganda þess að koma sér út úr húsi kallar á slagsmál. Prinsessan vill fara í háa sokka, en ekki þessa háu sokka. Prinsessan vill ekki vera í gammósíum því þær krumpast og alls ekki sokkabuxum. Buxur eru uppfinning andskotans að mati prinsessunnar og tannburstinn er óvinur prinsessa um heim allan. Saumar og hælar á sokkum eru píningartæki nútímans og skór eru framlenging á þeim skelfilegu pyntingum sem prinsessur verða fyrir þegar komast þarf út úr húsi fyrir klukkan níu á morgana. Stuttermabolir eru nauðsynlegar flíkur, en þó ekki alltaf, en ekki er sérlega æskilegt að klæða sig mikið yfir stuttermabol. Húfur og vettlingar eru alger óþarfi svo ekki sé talað um efnismeiri skjólflíkur eins og úlpu.
Og þrátt fyrir loforð um verðlaun, hótanir um refsingu eða sögur til að dreifa athyglinni er ekkert sem bítur á prinsessuna. Hún kýs að taka slaginn á hverjum morgni móður sinni til mikils ama.
Slagsmálin halda því áfram enn um sinn.

mánudagur, apríl 20, 2009

Tíminn líður hratt

Sex dagar. Sex dagar án þess að varnarjaxlinn hafi lesið heima og sex dagar síðan húsmóðirin skrifaði staf hér á þessum vettvangi. Það er greinilegt að annir hafa hamlað því sem gera átti. Reyndar kemur fleira en annir til þegar skoðaður er árangur í heimanámi drengsins. Hann er nefnilega afskaplega duglegur við að finna sér eitthvað að gera þegar komið er að háttatíma og bitnar það, því miður, á lestrinum sem yfirleitt fer fram fyrir svefninn.
Í síðustu viku var það uppvaskið sem kom í veg fyrir lestur. Varnarjaxlinn er staðráðinn í að safna sér stimplum og fá verðlaun fyrir viðvik og hefur því tekið upp hjá sjálfum sér að vaska stundum upp eftir kvöldmatinn, sem er ágætt í sjálfu sér. Uppvaskið tekur hins vegar sjö ára dreng óþarflega langan tíma og þegar móðirin segir að nú sé þetta orðið gott og hann eigi að fara að sofa er drengurinn ekki sáttur - uppvaskinu sé ekki lokið! Upphófst nú talsverð rimma með loforðum um að stimpillinn fáist fyrir uppvaskið þótt ekki séu öll glös hrein. Það var hins vegar ekki nóg fyrir drenginn sem endaði með fýlusvip uppi í rúmi, ólesinn.
Það er vandlifað í þessum heimi þegar maður er varnarjaxl og uppvaskari með metnað.

þriðjudagur, apríl 14, 2009

Post Páskar

Húsmóðurinni finnst eins og páskarnir í ár hafi verið lengri en undanfarin ár. Kannski er það vegna þess að varnarjaxlinn og prinsessan voru heima alla dymbilvikuna, hann í skólafríi og hún lasin. Kannski er það vegna þess að atvinnuleysi undanfarinna mánaða rennur saman við páskafríið eða kannski er það vegna þess að stjörnulögfræðingurinn eyddi öllum páskunum í að gæta réttlætis heimsins á meðan við hin dóluðum okkur heimavið. Sennilega spilar þetta allt saman. Páskarnir löngu (og þar meðtalinn föstudagurinn) eru þó á enda, prinsessan fór grenjandi (að vanda) í leikskólann í morgun, á morgun fer varnarjaxlinn í skólann og húsmóðirin tekst á við nýtt verkefni sem gæti orðið nokkuð spennandi. Nú er líka að koma vor og bráðum sumar. Ætli megi ekki bara segja að páskarnir mark ákveðin þáttaskil. Nú tekur við nýr kafli.