miðvikudagur, janúar 02, 2008

Hvern á að tala við til að fá frí?

Húsmóðirin lenti í smá klípu í dag. Hún ætlaði að ræða við yfirmann sinn um að fá mögulega "flutnings- og framkvæmdafrí" einn eða tvo daga í næstu viku. En þegar ræða átti við yfirmanninn vandaðist málið. Hvaða yfirmann á að ræða við þegar nýtt skipurit hefur verið kynnt en ekki samþykkt af stjórn. Samt á nýja skipuritið að gilda frá 1. janúar. Húsmóðirin tilheyrir því ekki lengur gömlu deildinni og því sennilega lítið upp úr því að hafa að tala við Sveppagreifann. Nýji forstjórinn sást lítið í dag en sennilega er best að tala við hann. Reynt verður að ná á hann við tækifæri og freista þess að fá frí.
Annars eru flutningar að nálgast ískyggilega hratt og hrá gólf og veggir í húsinu góða aðeins og lítið heimilisleg til að hægt sé að ímynda sér að þangað verði maður fluttur eftir 10 daga. En það getur ýmislegt gerst á skömmum tíma. Svo segir maður bara eins og maðurinn forðum, þetta reddast...

3 sagt:

Blogger inga hanna sagði...

talaðu bara við mig.
alveg sjálfsagt mál að þú takir smá frí :)

9/1/08 19:24  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég skal gefa þér frí Helga mín, næstum því hvenær sem er, bara ekki þegar við erum að plana drottningaviðburðinn ;) Annars máttu bara vera í fríi, alltaf, á launum meira að segja.

Kv. Hafdís

15/1/08 11:15  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ertu enn í fríi?!!

22/2/08 09:09  

Skrifa ummæli

<< Home