Þannig fór um sjóferð þá
Eflaust eru enn einhverjir sem standa í þeirri trú að húsmóðirin sé stödd í sól og sumri á Spáni. En sú er nú ekki raunin. Tveimur dögum fyrir brottför var sú ákvörðun tekin að fresta ferðinni. Ástæðan var sú að ættmóðirin veiktist hastarlega og var lögð inn á sjúkrahús. Því var lítið annað að gera en að hætta við ferðina. Ættmóðirin hefur engu að síður sjávarsýnina sem lofað var - reyndar út á Fossvog en ekki Miðjarðarhaf.
Þar sem að ritgerðin var svo gott sem tilbúin og komin til leiðbeinanda í yfirlestur hefur húsmóðirin haft lítið annað að gera en sinna húsmóðurlegum skyldum sínum. Íbúðin er því til algerrar fyrirmyndar þessa dagana og hafa heimilismenn áttað sig á að það er nú bara nokkuð huggulegt hér í nýja miðbænum. Plássleysi hrjáir okkur örlítið engu að síður. En nú þykir húsmóðurinn nóg komið af heimilisstörfum og vill komast út á vinnumarkaðinn. Allir sem luma á draumavinnu fyrir hámenntaða húsmóður skrifi komment.

4 sagt:
En leiðinlegt að heyra! ég sá þig og móður þína alltaf fyrir mér í grísaveislu á bikínitoppum með slæður um ykkur miðja, þig í bleikri, Ester í grænni, þig með bleikt gloss en Ester aðeins meira út í appelsínugult ... svo ítarlegt var sú draumsýn orðin ...
Au-pair vantar á Selfoss!!! Frítt fæði og húsnæði og frítt á árshátíðina sem er aldrei haldin ;)
hmmmm.... þarf aðeins að hugsa þetta. Læt mitt fólk hafa samband við þitt fólk.
vona að mömmu þinni sé að batna!
læt þig vita ef skatturinn ætlar í markaðsátak ;)
Skrifa ummæli
<< Home