Sjúkraflutningar ehf.
Ættmóðirin var flutt heim í dag. Húsmóðirin sá um flutningana og verður í sjúkraflutningum næstu daga þar sem ættmóðirin neyðist til að sækja sjúkrahúsið heim þrisvar á sólarhring til að þiggja sýklalyfjagjöf. Hvorki reyndist pláss á sjúkrahúsinu né í heimaþjónustu fyrir stjórnarnefndarmanninn. Greinilegt að ekki er verið að fara í sérstakt manngreinaálit á þeim bænum.
Húsmóðirin var samt óendanlega glöð að sjá ættmóðurina komna aftur í sitt eðlilega umhverfi. Og það voru börnin líka. Það var gott að fá ömmu heim.
Húsmóðirin var samt óendanlega glöð að sjá ættmóðurina komna aftur í sitt eðlilega umhverfi. Og það voru börnin líka. Það var gott að fá ömmu heim.

1 sagt:
Gott að hún er komin heim!
Líka gott að ritgerðin sé komin í prentun!
Til hamingju :)
Skrifa ummæli
<< Home