fimmtudagur, september 21, 2006

Lítill snillingur

Húsmóðirin minntist á það við heimilisfólkið í gær að nú væri ritgerðin tilbúin. Drengurinn sýndi strax viðbrögð "Mamma, er ritgerðin búin. Þá getur þú farið að vinna". "Já," svaraði móðirin. "Hvar finnst þér að mamma ætti að fara að vinna?" Ekki stóð á svari hjá drengnum. "Hvar langar þig að vinna mamma mín?"

Ef lífið væri svona einfalt...

2 sagt:

Blogger inga hanna sagði...

stundum er það svona einfalt - sem betur fer!

21/9/06 19:46  
Blogger hdb sagði...

Já, þú meinar það. Það skyldi þó aldrei vera...

22/9/06 10:20  

Skrifa ummæli

<< Home