föstudagur, febrúar 24, 2006

Gæsahúð

Húsmóðirin brá undir sig og stjörnulögfræðinginn betri fætinum í gærkvöld og skundaði á sinfóníutónleika. Innrásin frá Mars í öllu sínu veldi beið þeirra þegar þau settust á aftasta bekk í Háskólabíói (staðsetningin kom sér vel fyrir stjörnulögfræðinginn með sína löngu leggi - meira fótapláss aftast). Þegar fyrstu tónarnir brutu sér leið í gegnum mannþröngina og ljósasjóvið aftast í salinn spratt fram gæsahúð um allan líkama húsmóðurinnar.
Minningar um að hafa legið á rauðrósósóttu gólfteppi með alltof stór heyrnatól og hlustað á plötuna aftur og aftur og blaðað í gegnum bókina sem fylgdi með spruttu fram. Hvað lítil hnáta var gagntekin af tónlistinni og dauðhrædd um að það væri nú alveg möguleiki að marsbúar myndu ráðast á jörðina. Myndirnar ýttu undir hræðsluna og ógnvænlegustu myndirnar voru þær sem sýndu rautt efni flæða um bæi og torg. Í huga sex ára barns gat þetta rauða flóð ekki verið annað en blóð úr þeim mönnum, konum og börnum sem marsbúarnir höfðu murkað lífið úr.
Í 26 ár hefur þessi ógnvænlega mynd búið í huga húsmóðurinnar - í gær breyttist hún. Þar sem húsmóðirin sat með gæsahúð og hlustaði á söguna lesna með djúpri rödd Jóhanns Sigurðarsonar áttaði hún sig á því að "blóðið" hafði verið rautt marsbúaillgresi sem dreifði sér um alla jörð. Það var eins og lítil óttablaðra í huga húsmóðurinnar hefði sprungið og 26 ára ógn gufaði upp. Illgresi - það hlýtur að vera hægt að reyta það? Þetta voru þá ekkert ógeðslegar myndir eftir allt saman.
En tónlistin heldur áfram að vera grípandi og gæsahúðin minnkar ekki þótt blóð verði að illgresi.
Húrra fyrir Sinfó og þessu frábæra framtaki - og ekki síður húrra fyrir húsmóðurinni að hafa drifið sig á staðinn. Nú er bara að láta verða að því að sjá Sinfó og Chaplin.

2 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Voðalega er ég glöð yfir því að þú hafir náð tökum á þessum Marsbúa-ótta ;) Ertu enn með gæsahúð eða er von á nýrri bloggfærslu fljótlega?

27/2/06 22:04  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Gleymdi einu. Hitti son þinn á Selfossi í dag. Það væri nú gaman að sjá þig ;)

27/2/06 22:06  

Skrifa ummæli

<< Home