Innrásin frá Mars
Húsmóðirin er búin að fjárfesta í tveimur miðum á Innrásina frá Mars með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Með stjörnulögfræðinginn undir arminum mun hún skunda í Háskólabíó og rifja upp stundirnar sem hún lá á stofugólfi æskuheimilisins með tónlistina byljandi í heyrnatólunum. Þá var nú gaman að vera til. Verst að þurfa alltaf að liggja á gólfinu, heyrnatólin voru svo stór að þau héldust ekki á höfðinu þegar reynt var að setjast upp. Það verður spennandi að vita hvort tónlistin stendur undir minningunni.

2 sagt:
Ég man nú bara eftir að hafa hlustað á Stand by your man með Tammy Wynette í minni æsku og Just like starting over með John Lennon. Pabbi kom einu sinni heim með Bang & Olufsen græjur og varð þá heldur betur fjör á heimilinu ;)
Innrásin frá Mars hljómaði einmitt úr Bang&Olufsen - rosa sánd!
Skrifa ummæli
<< Home