Konan sem kíkir á brauðið
Húsmóðirin á það til að láta fólk fara í taugarnar á sér. Þegar fólk verður uppvíst að hegðun sem húsmóðirin myndi aldrei stunda er stutt í pirringinn hjá frúnni. Þannig er það með mat ókunnugra - maður er ekki að koma við hann. En á kaffistofum háskólans myndast stundum biðraðir við samlokugrillið og þá gerist það stundum að sá sem bíður opnar grillið lítillega og gáir hvort ekki fari að styttast í að samlokan á undan verði tilbúin. Ekkert við það að athuga. Kona ein gerðist sek um alvarlegan glæp undir þessum kringumstæðum fyrir ekki margt löngu. Hún lét sér ekki nægja að opna grillið og horfa heldur fór hún að tosa í álpappírinn og pota eitthvað og paufast. Húsmóðirin, eigandi samlokunnar, var nú ekki par hrifin af þessu og lét konuna nánast eyðileggja fyrir sér daginn. Til að kóróna allt þá verður þessi sama kona á vegi húsmóðurinnar nánast daglega og minnir í hvert sinn á þessa innrás í einkalíf húsmóðurinnar.
Svona gerir maður bara ekki...
Svona gerir maður bara ekki...

2 sagt:
Nákvæmlega, maður veit aldrei hvar þessir puttar hafa verið síðast!!!
Ullabjakk!
Skrifa ummæli
<< Home