Stolt
Húsmóðirin er stolt af drengnum sínum. Hann hefur undanfarin mánuð verið duglegur að mæta í íþróttaskólann á hverjum laugardagsmorgni. Í gær komu þeir feðgar heim með þær fréttir að drengurinn skyldi flytjast upp um flokk og mæta klukkutíma fyrr. Hann á nú að æfa með eldri börnunum. Drengurinn var víst sá eini sem gekk jafnvægisslána vandræðalaust og án hjálpar og átti það svo til að ýta á eftir þeim hægari ef hann vildi komast áfram á þrautabrautinni. Húsmóðirin er spennt að sjá hvernig hann spjarar sig innan um stóru krakkana.

2 sagt:
Mér sýnist hann ætla að feta í fótspor móður sinnar. Ekki man ég nú eftir að hún hafi ýtt mér af jafnvægisslá en snemma tók ég eftir þessari orkumiklu stelpu í Fossvogsskóla.
Þetta minnir að vísu svolítið á grín foringjans í umferðinni þegar hann hljómar eins og glæpon og segir: „Veriði ekki fyrir mér, aumingjarnir ykkar!"
You go, Björgvin Haukur!
Já hann hefur erft fimleikahæfileika mömmu sinnar, ánægð með þann stutta ekkert að láta þá hægu hamla sinni framför í gyminu!!
Skrifa ummæli
<< Home