föstudagur, janúar 12, 2007

Vinna, vinna, vinna

Húsmóðirin hefur ekki verið mikið í að sinna húsmóðurlegum skyldum undanfarið. Vinnan hefur átt hug hennar allan og nóg að gera á þeim vígstöðvum. Í gær var svo stigið stórt skref í rekstri heimilisins þegar úthýsing þrifa hófst. Gleðitilfinningin að koma heim í hreina íbúð í gær var ólýsanleg. Reyndar hafði drengurinn eitt umkvörtunarefni. Honum fannst gólfið ekki glansa nóg - það gerir það nefnilega alltaf í bíómyndunum þegar búið er að þrífa. Þrátt fyrir útskýringar móðurinnar þá vildi hann samt að gólfin myndu glansa. Sjáum hvort hann sættir sig við gólfin þegar fram líða stundir. Húsmóðirn er hamingjusöm og stjörnulögfræðingurinn líka og það er fyrir mestu. Svo er bara vinna, vinna, vinna framundan og aldrei að vita nema börnin fái einhvertíma sérherbergi. Ætti að skila sér eftir alla þessa vinnu en enginn veit sína ævi fyrr en öll er...

2 sagt:

Blogger inga hanna sagði...

til hamingju!
það er víst um nóg annað að hugsa þó gólfunum sé átsorsað...

12/1/07 21:25  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Settu bara guttann í það að bóna helv... gólfin, þá fær hann glansinn og kvartar svo aldrei aftur ;)

15/1/07 19:32  

Skrifa ummæli

<< Home