Jólatréð
er ennþá á svölunum. Meira að segja ennþá í jólatrésfætinum. Þegar húsmóðirin smellti því út á svalir var brunagaddur og tréð fraus fast í fætinum. Nú er þýða. Það er alveg spurning hvort það verði af því að einhver komi trénu uppúr fætinum og útaf svölunum áður en frystir aftur. Skilst reyndar að hreinsunardeildin sé hætt að hirða trén. Það væri þá ekki í fyrsta skiptið sem Verzlunarskólanemar sem stunda þann ósið að reykja undir austurvegg íþróttahússins fengju að njóta þess að hafa hjá sér jólatré framundir vor. Þau hafa kannski bara gaman að því, blessuð, reykjandi börnin.

2 sagt:
Kannski taka þau upp á því að reykja tréð!
Það væri reyndar ekki svo slæm hugmynd...
Skrifa ummæli
<< Home